Starfsendurhæfing Austurlands
Ný stjórn StarfA Skoða sem PDF skjal Prenta út Senda hlekk á þessa síðu til vinar
Laugardagur, 26. Nóvember 2011 11:04

Ársfundur StarfA var haldinn í Fróðleiksmolanum á Reyðarfirði 8. nóvember. Ný stjórn var mynduð og í henni sitja núna:

Gunnar Jónsson, f.h. Fjarðabyggðar.

Kristín Björnsdóttir, f.h. VR.

Sigrún Harðardóttir, f.h. Fljótsdalshéraðs.

Stefán Þórarinsson, f.h. Heilbrigðisstofnunar Austurlands.

Sverrir Albertsson, f.h. Afls-Starfsgreinafélags.

 
StarfA hópurinn flokkar föt Skoða sem PDF skjal Prenta út Senda hlekk á þessa síðu til vinar
Miðvikudagur, 23. Nóvember 2011 11:05

Nú er það þannig að StarfA hópurinn á Egilsstöðum hefur lokið við kúluverkefnið sitt og vantaði því verkefni til að hafa á miðvikudagsmorgnum. Ákveðið var því að fara að vinna fyrir Rauða krossinn og flokka og pakka fötum einu sinni í viku. Fyrsta skiptið var í dag og voru fatagámarnir alveg troðfullir,svo ærið verkefni var fyrir höndum. Góð mæting var og með leiðsögn frá Johönnu Henriksson verkefnisstjóra tókst okkur að klára gámana fyrir hádegi og vorum við að vonum ánægð með árangurinn.

 
Nytjahús Rauða krossins dregur fram jólaskrautið Skoða sem PDF skjal Prenta út Senda hlekk á þessa síðu til vinar
Þriðjudagur, 22. Nóvember 2011 09:44

Nytjahúsið hjá Rauða krossinum sem staðsett er við hliðina á Sorpu hefur núna um helgina lagt mikið kapp á að taka upp úr kössum hjá sér og stilla upp jóladóti fyrir hátíðirnar,hafa þau verið að safna jóladóti síðan í janúar og eru því mikið um fallegt skraut og jólaseríur og getur fólk jafnvel nálgast gerfijólatré og útiskraut.

Nytjahúsið hefur gengið svakalega vel alveg frá opnun og er það duglegum sjálfboðaliðum Rauða krossins og gjafmildi frá íbúum sveitafélagsins að þakka.

Ennþá er samt hægt að fá það sama og alltaf hefur verið og er mikið úrval af húsgögnum og smáhlutum ennþá á sínum stað, ávalt er heitt kaffi á könnunni og hlýtt viðmót frá sjálfboðaliðum.

Opnunartímar í Nytjahúsinu eru

Miðvikudaga og Fimmtudaga frá 16-18

Laugardaga frá  11-14

 
Ham-bók Reykjalundar opin á vefnum Skoða sem PDF skjal Prenta út Senda hlekk á þessa síðu til vinar
Mánudagur, 21. Nóvember 2011 10:29

Reykjalundur hefur opnað Ham-bók sína á vefnum fyrir almenning án endurgjalds.

Er Ham efnið því orðið mun aðgengilegra almenningi sem ávalt hefur verið stefna Reykjalundar

Mikil aðsókn hefur verið á námskeið hjá Reykjalundi og er það orðið svo viðamikið að ekki er lengur húspláss hjá þeim og hefur þess vegna verið bókaður salur á Hótel Sögu.

Bókin hefur verið endurskrifuð og er nú gefin út í formi sjálfshjálparbókar

 
<< Fyrsta < Fyrri 1 2 3 4 5 6 7 8 Næsta > Síðasta >>

JPAGE_CURRENT_OF_TOTAL

Eyðublöð

TILVÍSUN - eyðublað til útprentunar

TILVÍSUN - eyðublað (Word)

UMSÓKN - eyðublað til útprentunar

UMSÓKN - eyðublað (Excel)

Starfsendurhæfing Austurlands - Tjarnarbraut 39b 700 Egilsstöðum - Sími: 471-2938